FF - Aðalfundur Félags frímerkjasafnara

Aðalfundur Félags frímerkjasafnara
Boðað er til aðalfundar FF fimmtudaginn 21. nóvember næstkomandi. Dagskrá fundarins verður send út
með næsta Safni. Þeir félagar sem eiga eftir að greiða félagsgjöld eru hvattir til að gera það hið fyrsta.
Aðeins skuldlausir félagar eru kjörgengir og hafa atkvæðisrétt. Þeir félagar sem hafa áhuga á að starfa
eitthvað fyrir félagið, t.d. í stjórn eða nefndum, vinsamlegast látið stjórnarmenn vita. Formaðurinn vill þakka
þeim félagsmönnum sem hafa sent inn greinar og hugmyndir til að efla félagsstarfið á síðasta ári.