LÍF - Landsþing - þrefalt 2022, 2023 og 2024 - FRÍMERKJASÝNING OG FYRIRLESTUR

Landsþing Landssambands íslenzkra frímerkjasafnara fyrir árin 2022, 2023 og 2024 þann 25. janúar 2025

Frímerkjasýning verður samhliða þinginu laugardag og sunnudag 25.-26. janúar að Síðumúla 17.

 

Á sunnudeginum þann 26. janúar mun stór-Íslandsvinurinn, Svíinn Bengt Bengtsson halda fyrirlestur um PÓSKORTASÖFNUN.